Markvert á Húnavöku
Menningar- og fegrunarnefndar Blönduósbæjar hefur gengið til samstarfs við Markvert ehf um framkvæmd og skipulagningu Húnavöku 2012 auk þess sem Markvert mun hafa umsjón með útgáfu kynningarbæklings um Blönduós.
Markvert ehf er í eigu hjónanna Karls Jónssonar og Guðnýjar Jóhannesdóttur en fyrirtækið sérhæfir sig í viðburðastjórnun og almannatengslaþjónustu.
Þau Karl og Guðný hafa þegar hafið undirbúning hátíðarinnar og óska þau sérstaklega eftir því að fá að heyra frá íbúum á Blönduósi sem án efa hafa margar hugmyndir um hvernig gera góða hátíð enn betri.
Nánari upplýsingar um hvernig hægt er að ná í þau er að finna á www.markvert.is
Á myndinni eru þau Ragnheiður Ólafsdóttir formaður Menningar- og fegrunarnefndar, ásamt þeim Guðnýju Jóhannesdóttur og Karli Jónssyni frá Markvert ehf.