Markviss gerir athugasemdir við vopnalög

Á Fésbókarsíðu skotfélagsins Markviss segir að stjórnin fari fram á að atriði í nýju vopnalaga frumvarpi, sem nú er til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd, verði leiðrétt á þann veg að ekki verði útilokaðar viðurkenndar keppnisgreinar í skotfimi sem og að ekki verði settar skorður við fjölda skotvopna sem einstaklingar megi eiga aðrar en þær að geymslustaður uppfylli ströngustu kröfur.

Um Byssu(vopna)lagafumvarpið segir Markviss á Fésbókarsíðu félagsins:

1. Grófar skammbyssur skv.reglum ÍSÍ/STÍ bannaður innflutningur og bannað að selja þær innanlands milli aðila sem þó hafa réttindi.

Leyft að selja úr landi ! Já, selja skammbyssur úr landi!!! Hverjum dettur þessi þvæla í hug? Eina greinin innan STÍ/ÍSÍ sem leyfilegt er að skjóta í mark með stærri skammbyssum. Þetta atriði er í þversögn við tillögur nefndarinnar sem samdi lögin enda með ólíkindum að verið sé að leggja til að leggja niður eina íþróttagrein vegna ?

2. Hámarks eign byssa er 20 stk. Um 70 manns falla undir þennan flokk. Fram kom á Skotþingi að fulltrúi STÍ var alfarið á móti þessari grein enda var það samþykkt í stjórn STÍ að leggja til breytingar á þessar grein en ekki var á það hlustað.

Þessir aðilar mega ekki versla byssur framar. Verða allavega selja þannig að þeir eigi bara 19 stk. við næstu kaup. Skiptir engu þó allir þessara aðila séu með geymslur sem uppfylla ströngustu skilyrði um vörslu og séu í engum tengslum við glæpagengi.

Drög að lagafrumvarpi um vopn, sprengiefni og skotelda er hægt að nálgast HÉR

Fleiri fréttir