Matar- og hönnunarleiðsögn í snjallsíma

Nýlega var vefurinn Shoplocal.is opnaður en hann er ætlaður ferðamönnum sem hafa áhuga á að kynna sér og kaupa íslenskan mat og/eða handverk úr héraði. Á Shoplocal.is geta ferðamenn meðal annars fengið upplýsingar um þær vörur sem eru í boði, opnunartíma, heimilisfang og símanúmer auk þess sem hægt er að sjá staðsetningu á korti og fá ferðaleiðsögn.

Shoplocal.is er tilraunaverkefni sem Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst stendur að. Verkefnið er styrkt af Norðurslóðaáætluninni (NPP) og er hluti af samstarfsverkefni nokkurra landa á norðurslóðum.Tilraunaverkefninu lýkur í árslok 2013 en þá er stefnt að því að ábyrgur rekstraraðili taki við rekstri síðunnar og haldi verkefninu áfram.

Þeir sem selja mat eða hönnun úr héraði geta látið skrá sig á shoplocal.is að kostnaðarlausu með því að hafa samband við Emil B. Karlsson, umsjónarmann verkefnisins á emil@bifrost.is.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir