Matís gefur bók í alla leikskóla

Á dögunum var Guðrún Kristín Eiríksdóttir starfsmaður Matís á ferð um leikskóla í Skagafirði að gefa litla bók sem Matís hefur gefið út handa leikskólabörnum. Markmiðið með bókinni er að vekja jákvæða umræðu um fisk meðal barnanna. Bókin byggir á kvæðinu um fiskinn hennar Stínu eftir Jóhann G. Jóhannsson og er myndskreytt og þannig aðgengileg fyrir aldurshópinn.

Bókagjöfin er liður í átakinu „Fiskídag“ en megin markmiðið með verkefninu er að auka fiskneyslu ungs fólks, þar sem að það nær ekki lýðheilsumarkmiðum samkvæmt landskönnun sem gerð var á vegum Matís. Auk bókarinnar sem gefin er leikskóla börnum hefur verið útbúið kennsluefni í heimilisfræði fyrir elsta stig grunnskóla, sem aðgengilegt verður á heimasíðunni www.fiskidag.is en þar má jafnframt lesa nánar um átakið.

Fleiri fréttir