Matvæladagur MNÍ, 18. október 2011
Matvæladagur MNÍ verður haldinn í 19. sinn þriðjudaginn 18. október nk. frá kl. 12:30 til 18:00 á Hilton Reykjavík Nordica Hótel. Heilsutengd matvæli og markfæði, Íslensk vöruþróun, framleiðsla, rannsóknir og markaðssetning er megin inntak dagsins.
Ástæðan fyrir vali á því efni eru þær augljósu og miklu framfarir og þróun sem orðið hafa í framleiðslu á matvælum og heilsutengdum vörum á Íslandi, úr íslensku hráefni, í tengslum við íslenskt hugvit og framtakssemi en ekki síst trú á því að Ísland og íslenskt hráefni hafi verulegt forskot og sérstöðu samanborið við hráefni annarsstaðar frá, samkvæmt tilkynningu frá undirbúningsnefnd.
Árið 2010 var sú nýbreytni reynd með góðum árangri að einstaklingum sem unnið hafa við rannsóknir á sviði næringar, matvæla, náttúrulyfja, náttúruefna og fæðubótarefna var boðið að kynna niðurstöður sínar á veggspjöldum í kaffihléum án endurgjalds. Einnig var áhugasömum fyrirtækjum í matvæla-, náttúrulyfja, náttúruefna- og fæðubótarefnageiranum boðið að kynna vörur sínar á kynningarbási gegn 20.000 kr. gjaldi. Tvö kaffihlé, hvort um sig 25 mínútur að lengd verða yfir daginn auk þess sem hægt er að nýta tímann á meðan á skráningu stendur frá kl. 11:15 til kl. 12:00.
-Í ár hyggjumst við einnig bjóða upp á þetta fyrirkomulag og hvetjum við áhugasama til að hafa samband við Fríðu Rún Þórðardóttur hið fyrsta eða a.m.k. fyrir 12. október nk. með tölvupósti á frida@lsh.is en takmarkað pláss er til ráðstöfunar, segir frá undirbúningsnefndinni.
Rétt er að benda á að fyrirtækjum og aðilum sem hyggjast kynna sínar vörur og rannsóknir þurfa sjálf að leggja til kynningarborð og einnig er rétt að komi fram að ekki er leyfilegt að elda á staðnum.