Með hverju finnst þér mjólkin best?

Í október og nóvember stóð Mjólkursamsalan fyrir netleik á vefsíðu sinni ms.is, þar voru neytendur hvattir til að segja sína skoðun á því hvað þeim þætti best með mjólkinni.  Dregið var úr innsendum tillögum og var Björk Gunnbjörnsdóttir sú heppna og vann sér inn glæsilegan Ipad. Björk finnst mjólkin best með hafragrautnum í sveitinni. Gríðarlega góð þátttaka var í leiknum og komu margar skemmtilegar tillögur en hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af hugmyndum neytenda.

 

  • “Mér finnst mjólk best með stappaðri ýsu og fiskibollum”
  • “Heimabökuðu rúgbrauði , smjöri og kindakæfu, snæddu í góðri laut fjarri mannabyggð”
  •  “Nýbakaðri skúffuköku en hún er alltaf góð”
  • “Soðinni ýsu og nýjum íslenskum kartöflum, stöppuðu með smjöri”
  • “Kringlum úr Gamla bakaríinu á Ísafirði og pönnukökum bökuðuðum í norðurbæ Hafnarfjarðar”
  • Kjúklingi og frönskum”
  • ”Kexi, köku, kjöti, út á morgunkornið, í hreinlega allt”
  • “Hakki og spagettí”
  • “Með pylsunni”
  • “Pítsu, alveg síðan ég var 10 ára, alltaf mjólk ! ”.

/ms.is

Fleiri fréttir