Meira en hundrað gönguleiðir komnar á blað

Kirkjuhvammur á Hvammstanga. Mynd: wikiloc.com
Kirkjuhvammur á Hvammstanga. Mynd: wikiloc.com

Hnitsetning gönguleiða var meðal átaksverkefna Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, vegna áhrifa Covid-19. Ráðnir voru tveir starfsnemar til verksins með stuðningi frá Vinnumálastofnun, annar með ráðningarsamband við Akrahrepp og hinn við SSNV.

Í frétt á vef SSNV segir að nemarnir hafi undanfarið unnið að undirbúningi verkefnisins og skilgreiningu þeirra gönguleiða sem ganga á og ljóst sé að möguleikarnir séu margir. Nú eru meira en hundrað leiðir komnar á blað og hefst nú vinna við að ganga þær og safna þeim saman. Gönguhópur Skagafjarðar hefur lagt verkefninu lið með því að hnitsetja þær leiðir sem hópurinn gengur.

Stofnaður hefur verið aðgangur á Wikiloc til að safna leiðunum saman en þeim verður í framhaldinu deilt á fleiri sambærilegar síður. „Má búast við að þangað inn tínist góðar gönguleiðir smátt og smátt í sumar og því tilvalið fyrir íbúa landshlutans að reima á sig gönguskóna og njóta náttúrunnar í fallega landshlutanum okkar. Við hvetjum þá sem hafa ábendingar um áhugaverðar gönguleiðir að hafa samband,“ segir á vef SSNV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir