Menningarrað auglýsir eftir umsóknum
Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Ákveðið hefur verið að hafa eina aðalúthlutun verkefnastyrkja á árinu 2014, með umsóknarfresti til og með 12. febrúar nk.
Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir um leið eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Styrkirnir miðast við starfsemi árið 2014. Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar nk.
Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu SSNV, www.ssnv.is, undir liðnum Menningarráð. Umsóknir skulu sendar menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, eigi síðar en 12. febrúar 2014. Umsóknir sendist rafrænt á netfangið menning@ssnv.is en séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.