Menningarsamningur í biðstöðu

Um síðustu áramót rann út gildandi menningarsamningur við ríkið. Í undirbúningi er nýr menningarsamningur – drög voru send til samtaka sveitarfélaganna um miðjan janúar – menningarráð hefur fundað um samninginn og stjórn SSNV sendi sínar athugasemdir 4. feb. sl. til ráðuneytis mennta- og menningarmála.

Nú er beðið eftir viðbrögðum „að sunnan“ og þá hvenær hægt yrði að ganga frá samningi og undirrita hann. Á fundi sínum, 28. jan. sl., ákvað menningarráð að stefna að tveimur úthlutunum á þessu ári – með umsóknarfrestum 15. mars og 15. september – eins og verið hefur. Sá fyrirvari var þó gerður við tímasetningu fyrri umsóknarfrestsins að samkomulag næðist við ríkið fljótlega.

Einnig var ákveðið að umsóknarfresturinn yrði auglýstur eins og verið hefur þ.e. með dreifibréfi inn á öll heimili og fyrirtæki á Norðurlandi vestra ca þrem vikum /mánuði áður en umsóknarfrestur rynni út.

Þetta er staðan í dag – svolítil biðstaða - en um leið og eitthvað skýrist verður því komið á framfæri. Segir í dreifibréfi frá Menningarráði.

Fleiri fréttir