Menningarsjóður KS úthlutar styrkjum

Úthlutun styrkja úr Menningarsjóði KS fór fram í Kjarnanum sl. þriðjudag en margir fengu styrki í þetta skiptið, eða alls voru 20 úthlutanir. Auk þess að leggja verkefnum lið eru styrkirnir jafnframt hugsaðir sem viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins.

Sjóðurinn fagnar 50 ára afmæli árinu og stendur til að fagna þeim tímamótum í desember. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri sagði mismikinn kraft hafa verið í sjóðnum á milli ára, eftir misjöfnu árferði, en síðustu ár hefur hann verið í góðri stöðu til að styrkja menningarstarf í héraði. Þá sagðist hann vera viss um að þessir fjármunir munu allir ganga til góðra hluta.

Að þessu sinni var sú nýlunda að tveir styrki runnu utan héraðs eða í Austur-Húnavatnssýslu, það voru Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og Laxasetrið á Blönduósi sem hlutu styrkina. Við styrkveitinguna sagði Þórólfur að stjórn Menningarsjóðsins hafi nú með ánægju ákveðið að styrkja menningarstarf í Húnavatnssýslum, en með tilkomu Þverárfellsvegar sagði hann sýslurnar hafi tvinnast meira saman með auknum viðskiptum og samgöngum.

Þá fékk Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra sérstaka úthlutun upp á 2,5 millj. kr. til að þróa og koma á kennslu í nýjum námsgreinum við skólann.

Hér eru þeir sem fengu úthlutað úr Menningarsjóði KS þann 5. júní 2012:

  • Siglingaklúbburinn Drangey. Til að festa kaup á nýjum björgunarbát.
  • Lafleur útgáfan og JKH-sjósund. Heimildarmynd um sjósund á Íslandi.
  •  „Sönglög á Sæluviku“
  • Garðyrkjufélag Skagafjarðar. Sumarferð félaga.
  • Jón Þorsteinn Reynisson. Ferðaðist um landið með harmonikku sína og stefnir á nám í Kaupmannahöfn.
  • Kvennakórinn Sóldís
  • Laxasetur Íslands
  • Sögufélag Skagfirðinga/Byggðasaga Skagafjarðar. Gerð heimildarmyndar um ritun Byggðasögunnar.
  • Skotta kvikmyndafjelag. Koma á laggirnar menningarbíói á Sauðárkróki.
  • Leikfélag Sauðárkróks
  • Erla Gígja Þorvaldsdóttir. Útgáfa á geisladisk.
  • Akrahreppur. Gerð kvikmyndar um lífið í hreppnum.
  • Golfklúbbur Sauðárkróks
  • Raggmann ehf. Gæran tónlistarhátíð, 24. – 26. ágúst.
  • Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
  • Leikfélag Hofsóss
  • Hóladómkirkja. Helgihald og listahátíðir í sumar.
  • Björgunarsveitin Grettir. Stækkun á aðstöðu á Hofsósi.
  • Smásagnasafn Guðmundar L. Friðfinnssonar
  • Samgönguminjasafn Skagafjarðar
  • Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra. Þróun og aðstoð við að koma á kennslu í nýjum námsgreinum við skólann.

Fleiri fréttir