Met slegið hjá SAH Afurðum

Sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum er í fullum gangi um þessar mundir og hefur allt gengið mjög vel fyrir sig, samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins.

Þar segir að met hafi verið slegið í meðalfallþunga dilka sem var 18,86 kg, en er sú tala sú langhærsta sem elstu menn muna og ekki eru til skýrslur um meir fallþunga. Flestir dilkana voru frá Hörgárdal og af Ströndum.

Hjá SAH Afurðum er mikil áhersla lögð á nýtingu aukaafurða og er svo fyrir komið að nánast allt er notað. Þar má nefna tilraunarvinnslu á löppum og hausum fyrir afríkumarkað.

Fleiri fréttir