Meta möguleika á vindorkuframleiðslu

Úr Húnavatnshreppi. Mynd: Bþ
Úr Húnavatnshreppi. Mynd: Bþ

Á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps í síðustu viku var tekin fyrir umsókn um stöðuleyfi Landsvirkjunar fyrir tvær stöðvar til veðurfarslegra athugana til að meta möguleika á vindorkuframleiðslu á Norðurandi vestra. Munu slíkar mælingar standa yfir í um eitt ár. Um er að ræða 60 metra há möstur og gert er ráð fyrir að önnur stöðin verði í landi Steinár 2-3 og hin á Auðkúluheiði.

Umsóknin var lögð fram til kynningar á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps síðastliðinn miðvikudag. Í henni kemur fram að markmiðið með stöðvunum sé að mæla vindhraða og aðra veðurfarslega þætti. Ekki verði verulegt jarðrask af framkvæmdunum og þær verði að fullu afturkræfar.

Skipulags- og byggingarnefnd Húnavatnshrepps hefur samþykkt stöðuleyfi fyrir báðar mælistöðvarnar til eins árs. Leyfi fyrir uppsetningu veðurstöðvanna liggur fyrir frá landeigendum.

Fleiri fréttir