Metfjöldi útskrifta frá HÍ í dag

Yfir 2.500 manns brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands í dag 19. júní og hafa aldrei verið fleiri. Líkt og í fyrra verður brautskráning með sérstöku sniði vegna sóttvarnatakmarkana enbrautskráningarathafnir verða tvær og fara fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal (nýju Laugardalshöllinni) að þessu sinni.

Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að einungis kandídatar, sem taka á móti brautskráningarskírteinum sínum, muni verða við athafnirnar. Bein útsending verður hins vegar frá þeim báðum fyrir aðstandendur, vini og önnur áhugasöm og hægt verður að fylgjast með í spilaranum hér fyrir neðan.

Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, fá kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði útskriftarskírteini sín. Samtals brautskrást 736 frá Félagsvísindasviði og 287 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði.

Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði og Menntavísindasviði. Þar brautskráist 671 frá Heilbrigðisvísindasviði, 298 frá Hugvísindasviði og 556 frá Menntavísindasviði.

Samanlagt verða 1621 kandídatar brautskráðir úr grunnnámi að þessu sinni og 927 úr framhaldsnámi. Alls munu því 2.548 kandídatar útskrifast frá Háskóla Íslands á laugardag en það er langmesti fjöldi sem skólinn hefur brautskráð í einu lagi. Til samanburðar voru kandídatarnir 2.050 í fyrra.

Í hópi brautskráningarkandídata nú eru fyrstu nemendurnir sem ljúka meistaranámi í iðnaðarlíftækni, sem Háskóli Íslands býður upp á í samstarfi við lyfjafyrirtækið Alvotech. Jafnframt tekur fyrsti nemandinn sem lýkur meistaranámi í líftölfræði við brautskráningarskírteini sínu og sama má segja um fyrsta nemandann með meistarapróf í faraldsfræði. Enn fremur ljúka fyrstu nemendurnir viðbótardiplómanámi í hagnýtri skjalfræði.

Líkt og áður mun Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytja ávarp við athöfnina og þá munu Ingvar Þóroddsson, BS í rafmagns- og tölvunarverkfræði, og Valdís Huld Jónsdóttir, MS í iðnaðarlíftækni, ávarpa gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur. Tónlistarkonan Bríet stígur á stokk á fyrri athöfninni og skemmtir gestum ásamt Rubin Pollock og á þeirri seinni treður Jónas Sigurðsson upp ásamt Ómari Guðjónssyni.

Háskóli Íslands brautskráði 467 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3.015 útskrifast frá skólanum það sem af er ári.

Kandídatar hafa fengið sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna en áhersla hefur verið lögð á að þær séu öruggar m.t.t. sóttvarna. Þannig verður Frjálsíþróttahöllinni skipt í afmörkuð svæði í samræmi við tilmæli sóttvarnayfirvalda en starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir