Miðfirðingar og Hrútfirðingar héldu í göngur í gær
Fyrstu göngur haustsins hófust um hádegi í gær, þegar bændur í Hrútafirði og Miðfirði héldu til fjalla. Fyrsti réttardagur haustsins verður á morgun, laugardag, en þá er réttað í Hrútatungurétt í Hrútafirði, Miðfjarðarrétt í Miðfirði og Rugludalsrétt í Blöndudal.
Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær var rætt við Matthildi Hjálmarsdóttur, bónda á Þóroddsstöðum í Hrútafirði en bændur í Vestur-Húnavatnssýslu voru þá að leggja af staðí göngur.
Sagði Matthildur ða smalað yrði á Arnarvatnsheiði, Tvídægru og vestur að þjóðvegi á Holtavörðuheiði. „Við erum í fyrra fallinu núna. Það hefur verið hefð hér að fara upp fyrsta fimmtudag í september. Og það stendur bara af sér þannig núna að það er 1. september, þess vegna er þetta svona snemmt,“ sagði Matthildur í samtali við Ríkisútvarpið.
Helstu fjár- og stóðréttir í Húnavatnssýslum verða sem hér segir:
Fjárréttir:
Laugardagurinn 3. september:
- Hrútatungurétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
- Miðfjarðarrétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
- Rugludalsrétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.
Föstudagurinn 9. september:
- Valdarásrétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
- Undirfellsrétt, A-Hún., fyrri réttardagur, hefst klukkan 12:00.
Laugardagurinn 10. september:
- Undirfellsrétt, A-Hún., seinni réttardagur, hefst klukkan 9:00.
- Auðkúlurétt, A-Hún., hefst klukkan 08:00.
- Stafnsrétt, A-Hún., hefst klukkan 08:30.
- Víðidalstungurétt, V-Hún., hefst klukkan 10:00.
- Hamarsrétt, V-Hún., hefst klukkan 10:00.
- Hlíðarrétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.
- Þverárrétt, V-Hún.
Sunnudagurinn 11. september:
- Skrapatungurétt, A-Hún., hefst klukkan 10:00
- Sveinsstaðarétt, A-Hún., hefst klukkan 10:00.
Þriðjudagurinn 13. september:
- Beinakeldurétt, A-Hún., hefst klukkan 09:00.
Laugardaginn 17. september:
- Hvalsárrétt, V-Hún.
Stóðréttir:
Laugardagurinn 3. september:
- Miðfjarðarrétt, V-Hún., hefst klukkan 09:00.
Sunnudagurinn 18. september:
- Skrapatungurétt, A-Hún., hefst klukkan 09:00.
- Hlíðarrétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.
Laugardagurinn 24. september:
- Undirfellsrétt, A-Hún., hefst klukkan 9:00.
- Þverárrétt í Vesturhópi.
- Auðkúlurétt, A-Hún., hefst klukkan 16:00.
Laugardagurinn 1. október:
- Víðidalstungurétt, V-Hún., hefst klukkan 10.
Heimild: huni.is. Listinn er ekki tæmandi og birtur með fyrirvara um villur.