Miðfjarðará uppfyrir Blöndu

Eftir að hafa verið fast á hæla Blöndu í sumar hefur Miðfjarðará skotist ofar á listann og er nú í fimmta sæti yfir aflahæstu laxveiðiár landsins með 2564 veidda laxa en Blanda er komin í 6. sætið með 2421.

Þessar tölur eru að venju uppfærðar á miðvikudögum á vefnum angling.is og miðast því gærdaginn, 21. ágúst.

Í Blöndu vantar nú um 300 laxa upp á að met verði slegið, en tölurnar ná aftur til ársins 1974 og síðan þá hafa mest veiðst 2777 laxar á sumri í ánni. Í Miðfjarðará eru hins vegar litlar líkur á metári, því þar hafa tvisvar á áðurnefndu tímabili veiðst yfir 4000 laxar.

Tölur úr öðrum laxveiðiám á Norðurlandi vestra eru eftirfarandi:

Laxá á Ásum 818

Vatnsdalsá 806

Víðidalsá 600

Hrútafjarðar- og Síká 380

Svartá í Húnavatnssýslu 242

Fljótaá 197

Fleiri fréttir