Mikið foktjón í Skagafirði

Söngdívan Diddú var ekki fyrr búin að yfirgefa Skagafjörð, eftir að hafa sungið á tónleikum með Geirmundi Valtýssyni, en stormur sem kenndur hefur við hana gerði mikinn usla í Firðinum. Þrátt fyrir að þarna sé um tilviljun að ræða er ljóst að veðrið sem gekk yfir landið allt sl. mánudag og náði mestum hæðum á Suðurlandi og í Skagafirði, er eitt hið versta í 25 ár. Afleiðingarnar voru þær að umtalsverðar skemmdir urðu á mörgum íbúðar og útihúsum í Skagafirði, þakplötur losnuðu og lausamunir fuku.
Verst var veðrið í Blönduhlíð og í Hegranesi, en þó varð víðar tjón. Rafmagnslaust varð á fimmtán bæjum í Blönduhlíð og á einhverjum bæjum í Fljótum og fleiri byggðarlögum. Eins og nærri má geta var öllum viðburðum frestað og skólastofnanir lokuðu fyrr en venja er á mánudag, auk þess sem allt skólahald í Skagafirði utan Sauðárkróks féll niður á þriðjudag.
Að sögn Bjarna Kristófers Kristjánssonar, formanns svæðisstjórnar björgunarsveitanna á svæði 10, sem nær yfir Siglufjörð og Skagafjörð, voru um 24 skráð útköll á svæðinu, langflest í Skagafirði, auk ýmissa smærri viðvika. Björgunarsveitarmenn voru að störfum allan þriðjudaginn, en víða var ekki hægt að huga að skemmdum fyrr en þá um morguninn.
„Björgunarsveitinni Gretti fóru að berast útköll um kl. 23 og þeir fóru í rúmlega tíu útköll. Strax um klukkan átta um kvöldið kom útkall úr Blönduhlíð sem Skagfirðingasveit fóru af stað í, þeir gátu þó lítið aðhafst vegna veður,“ segir Bjarni. Hann bætir því við að ákveðið hafi verið í samráði við ábúendur á Hjarðarhaga í Blönduhlíð, þar sem þakplötur voru að losna af íbúðarhúsi, að snúa frá. Strax í birtingu voru svo menn frá Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð og Skagfirðingasveit komnir af stað og sinntu útköllum allan þriðjudaginn og komu að viðgerðum.“ Alls tóku um 50 manns þátt í aðgerðum á svæði 10. Þá fóru bændur á milli bæja og aðstoðuðu nágranna sína við viðgerðir.
„Mín upplifun er sú að fólk hafi virkilega undirbúið sig fyrir þetta veður og við þurftum hvergi að aðstoða fólk sem komið hafði sér í vandræði, t.d. í föstum bílum. Þá var búið að keyra um bæði Hofsós og Sauðárkrók og huga að lausamunum áður en veðrið skall á,“ sagði Bjarni. Þar sem lýst hafði verið yfir almannavarnaástandi var aðgerðum stýrt af Almannavarnarnefnd Skagafjarðar, auk þess sem stjórnstöðvar voru á Hofsósi, Hólum og Varmahlíð. „Við áttum mjög gott samstarf við almannavarnir, þeir komu mjög sterkir inn,“ sagði Bjarni ennfremur.
Í Blönduhlíð lokaðist þjóðvegur eitt á milli bæjanna Sólheima og Miðsitju, þar sem á annan tug rafmagnsstaura brotnuðu og línan lá þvert yfir veginn. Fram kom í fréttum RÚV að umrædd lína hefði hingað til staðist flest veður, en þetta óveður þoldi hún ekki. Fyrir vikið var rafmagnslaust á fimmtán bæjum í sveitinni. Upp úr kl. 14 á þriðjudaginn var búið að leggja hjáleið og opna fyrir umferð um veginn og var vegurinn vaktaður fram á kvöld. Rafmagn var komið á alla bæi um kl. 16 í fyrradag.
Að sögn Steingríms Jónssonar deildarstjóra netreksturs RARIK á Norðurlandi er um að ræða rafmagnslínu sem lögð var árið 1966. „Það er verið að meta hvort við gerum við línuna eða leggjum streng í jörð strax, þessi lína var í fyrsta flokki endurnýjunar og átti að vera búið að endurnýja hana fyrir árið 2020.“ Aðspurður um fjárhagslegt tjón sagði Steingrímur að verið væri að taka það saman en 6 til 8 menn hefðu verið í viðgerðum allan þriðjudaginn, auk bilanaleitar um nóttina.
Hjá Skagafjarðarveitum voru allar veitur inni en margar dælustöðvar keyra á varaaflsstöðvum, að sögn Indriða Þórs Einarssonar, framkvæmdastjóra veitu- og framkvæmdasviðs hjá Svf. Skagafirði. „Einhverjar truflanir voru á hitaveitunni í nótt og Fljótin duttu út vegna rafmagnsleysis, en þar er verið að koma kerfinu í lag þessa stundina,“ sagði Indriði í samtali við Feyki upp úr hádegi á þriðjudaginn.
Húnavatnssýslurnar sluppu með skrekkinn
„Það gekk allt vel hér í Húnaþing vestra. Sveitin var í viðbragðsstöðu, en við þurftum ekki að sinna neinum útköllum. Ég hef heldur ekki frétt af neinu tjóni,“ sagði Gunnar Örn Jakobsson, formaður Björgunarsveitarinnar Húna í samtali við Feyki á þriðjudaginn.
Sömu sögu var að segja hjá Björgunarfélaginu Blöndu. Við fórum í útkall að Hnjúki í Vatnsdal í nótt. Þar sprakk hurð á fjósi og var einnig að fara á kálfafjósi. En þetta er að byrja hjá okkur núna,“ sagði Hjálmar Björn Guðmundsson hjá Björgunarfélaginu Blöndu.