Mikil ásókn í íbúðarhúsnæði á Skagaströnd

Frá höfninni á Skagaströnd. MYND: ÓAB
Frá höfninni á Skagaströnd. MYND: ÓAB

Vefur RÚV segir frá því að húsnæðisskortur standi íbúaþróun og atvinnuuppbyggingu á Skagaströnd fyrir þrifum en þar sé mikil ásókn í íbúðarhúsnæði en ekkert laust. Í nýlega birtri húsnæðisáætlun kemur meðal annars fram að þar þurfi að byggja 2-4 íbúðir á ári fram til ársins 2026 til að uppfylla þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði og koma á nauðsynlegu jafnvægi.

Rúv.is hefur eftir Alexöndru Jóhannesdóttur, sveitarstjóra, að ungir Skagstrendingar sæki í auknum mæli í að flytja heim og þá vanti fólk á staðinn til að sinna auknum atvinnutækifærum. „Ég held að það sé sama staða hér og á mörgum öðrum stöðum, að það stendur okkur fyrir þrifum að geta ekki veitt fólki fullnægjandi húsnæðiskost. Við getum tæplega aukið mikið við atvinnuþróun á svæðinu ef við erum ekki með húsnæði fyrir fólk til þessa að geta fjölgað þessum störfum.“

Eins og víðar í dreifbýli er söluverð á íbúðarhúsnæði lægra en byggingarkostnaður sem dregur úr áhuga verktaka á að byggja íbúðir. Til að liðka fyrir felldi sveitarfélagið niður gatnagerðargjöld á 14 lóðum við tilbúnar götur og stendur það tilboð út kjörtímabil núverandi sveitarstjórnar. Þá eru viðræður við leigufélagið Bríeti um byggingu leiguhúsnæðis.

Alexandra segir áhugaleysi bankanna á að veita húsnæðislán til fólks í dreifbýli vera eitt þeirra atriða sem draga úr möguleikum á nýbyggingum. „Það er svosem það sem hefur verið erfiðast fyrir fólk. Það nær ekki að fjármagna ef það vill fara í einhverjar framkvæmdir. Og það er málefni sem er ekki nýtt af nálinni og eitthvað sem þarf að halda áfram að þrýsta á að taki einhverjum breytingum. Eða það séu einhver önnur úrræði fyrirfólk sem vill fara í uppbyggingu á landsbyggðinni. En það er ekki greiður aðgangur að fjármagni, það er alveg ljóst,“ segir hún í samtali við Rúv.is.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir