Mikil gróska í tómstundanámskeiðum Farskólans

Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá Farskólanum - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra í haust, t.d. húsgagnaviðgerðir, ljósmyndanámskeið, þæfing, veðurfar, japanskt bókband og ýmis námskeið í matargerð, svo fleira mætti nefna.

„Mikið um að vera hjá Farskólanum þessa dagana, mörg námskeið eru að fara af stað og er sérstaklega mikil gróska í tómstundanámskeiðum,“ sagði Halldór Gunnlaugsson verkefnisstjóri hjá Farskólanum.

Fram kemur á heimasíðu Farskólans að góð aðsókn hefur verið á tómstundanámskeið í haust en undangengin eru námskeið um vín- og matarmenningu frá Chile, Sushigerð sem á rætur sínar að rekja til Japans og tvenn námskeið í þæfingu á Sauðárkróki.

 

Námskeið sem eru að fara af stað á Norðurlandi vestra:

Blönduós:

  • Fagnámskeið fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu er í gangi
  • Landnemaskólinn, íslenska fyrir útlendinga, hefst í byrjun nóvember
  • Námskeið í þæfingu. Enn eru laus pláss á þetta námskeið sem veraí fjögur skipti en ekki er ennþá búið að festa niður dagsetningar

Hvammstangi:

  • Fagnámskeið fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu er í gangi á Hvammstanga
  • Námskeið í Sushigerð verður 16. október
  • Ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur verður 29. október og 5. nóvember
  • Námskeið í húsgagnaviðgerðum (sýnikennsla) verður 23. október
  • Indversk matargerð verður haldið þann 1. nóvember í skólahúsnæðinu að Laugabakka

Sauðárkrókur:

  • Indversk matargerð verður kennd þann 18. október
  • Námskeið í ostagerð verður þann 22. október
  • Námskeið í fatasaumi verður haldið 29. og 30. október og er enn hægt að skrá sig til þátttöku
  • Veðurfar í Skagafirði með Einari Sveinbjörnssyni. Námskeiðið verður haldið í október og er enn hægt að skrá sig
  • Skráningar standa yfir á námskeið í húsgagnaviðgerðum (sýniskennsla)
  • Námskeið í vefsíðugerð (Word Press) hefst fljótlega og enn er hægt að skrá sig
  • Heitreyking matvæla en það námskeið verður haldið á Hótel Varmahlíð.
  • Enn er verið að ákveða dagsetningu á námskeiði í skrautskrift
  • Fyrirhuguð eru námskeið í japönsku bókbandi og prentun og vinnu með blek. Hægt er að skrá sig til þátttöku.

Einnig eru í bígerð eru stutt námskeið tengd jólum, þannig að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Nánar er hægt að lesa um námskeiðin á heimasíðu Farskólans en þar er einnig hægt að skrá sig til þátttöku.

Fleiri fréttir