Mikil plastmengun í hafinu

Sveitarfélagið Skagaströnd og Sjávarlíftæknisetrið Biopol ehf. standa saman að verkefni sem gengur út á að hvetja fólk til þess að ganga um fjörur, sem og önnur náttúrusvæði, í þeim tilgangi að taka með sér plast sem verður á vegi þess og koma í ferli sorps og endurvinnslu.

Siðastliðið vor var haldinn fundur um umhverfismál á Skagaströnd. Þar flutti James Kennedy sjávarlíffræðingur hjá BioPol fyrirlestur um plastmengun í hafi. Þar gerði hann fundargestum grein fyrir hversu ógnvænlegur sóðaskapur mannsins er í umgengni við hafið sem er ein af undirstöðum lífs á jörðinni. Magnið sem rekur á fjörur er mikið og ógnin við lífríkið meiri en almennt menn gera sér grein fyrir í daglegu lífi.

Á vef Skagastrandar segir: „Það er ugglaust hægt að finna ótölulegan fjölda skýringa á því hvers vegna svo mikið plast er að finna í hafinu og annarsstaðar í okkar „hreinu náttúru“. Umgengni við hafið er vissulega orðin miklu betri en áður þar sem sorpi er ekki lengur sturtað beint í sjóinn og reglur hafi verið settar um að sjófarendum sé óheimilt að kasta sorpi í hafið. Það er hins vegar vel þekkt að á okkar stormasömu eyju fýkur allt sem laust er ekki síst hið létta plast þegar hvassviðri ganga yfir. Við þurfum því að huga betur að því að laust efni – ekki síst plast, geti ekki fokið á haf út gert þar usla í umhverfi og lífríki. Við sem neytendur þurfum líka að huga betur að því hvað efni við drögum að okkur í daglegri neyslu, efni sem við í mörgum tilfellum notum ekki nema til að koma neysluvörunni á milli verslunar og heimilis, efni sem oftast flokkast undir efnaheitið PLAST.“

Hægt er að lesa meira um verkefnið hér.

Fleiri fréttir