Mikil veðursæld á Skagaströnd
Veðurstofa Skagastrandar hefur gefið út yfirlit yfir veðrið á Skagaströnd í nýliðnum janúar. Sumir telja verðið hafa verið til vandræða en það er rangt að mati veðurstofustjóra. Yfirleitt er því haldið fram af þeim sem einkum halda sig innandyra.
Skortur á snjókomu var nokkur í janúar á Skagaströnd og sá snjór sem náði til jarðar var á iðulausu ferðalagi hluta mánaðarins og endaði yfirleitt við húsveggi og lét þar mikið yfir sér. Stöku götur fennti í kaf og mikla vélavinnu þurfti til að ryðja þær. Svo ringdi og hvarf þá snjórinn á augabragði, hraðar en nokkur vél getur afkastað.
Meðalhitinn í janúar var aðeins hærri en í desember, var 0,7 gráður en í desember var hann 0,5. Hlýjasti dagur mánaðarins var 22. janúar en þá fór meðalhitinn upp í 6,3 gráður. Mjög hlýtt var þá og fór hitinn hæst upp í 8,6 gráður um klukkan 18 þennan dag. Ekki kólnaði þótt liði á nóttina. Um klukkan 5.50 næsta morgun, 23. janúar, náði hitinn 7 gráðum og meðalhiti þess dags var 5,2 gráður en fór síðan lækkandi til mánaðarmóta.
Kaldasti dagur mánaðarins var 6. janúar. Þá fór meðalhitinn niður í -9,4 gráður en hann segir nú ekki alla söguna því frostið fór ofan í -11,1 gráður klukkan 17 þann dag. Raunar var brunagaddur frá því kl. 9 um morguninn og fram til klukkan 21 um kvöldið. Frostið fór þá sjaldnast aldrei undir tíu gráður.
Frá 4. janúar og fram til þess 18. dvaldi hitamælirinn flesta daga undir frostmarki en eftir það var aldrei frost á Skagaströnd sé enn og aftur reiknað með hinu lygilega meðaltali.
Vindgangur var nokkur á Skagaströnd í janúar. Í kuldakaflanum í byrjun mánaðarins blés vindurinn langtímum saman yfir 20 m/s. Þannig var meðalvindhraðinn 7. janúar 17 m/s, en fór þann dag hæst upp í 24 m/s og hélt sínum krafti frá því klukkan átta um morguninn og langt fram yfir hádegi. Það þykir bornum og barnfæddum Skagstrendingum heldur lítið og ylja sér við minningar um stórviðri sem entust jafnvel lengur en í viku. Það draga aðfluttir stórlega í efa og furða sig um leið á minnisleysi samborgara sinna.
Spá veðurstofu Skagastrandar fyrir febrúar er tilbúin en helst er úr henni að frétta að vorið er enn fjarri og snjóa mun í febrúar, stundum verður hvasst, sjaldan mjög hvasst. Frost verður af og til og þess á milli hitnar. Mestur hiti verður í Skagstrendingum á komandi þorrablóti. Kaldast verður á Spákonufelli.
Þessi skemmtilega veðursamantekt og nánari lýsingar eru á vef Skagastrandar