Mikill fjöldi umsókna á leikskólann Barnabæ
Á fundi fræðslunefndar Blönduóssbæjar í síðustu viku fór Jóhanna G Jónasdóttir leikskólastjóri Barnabæjar yfir stöðu mála í leikskólanum. Mikill fjöldi umsókna er í skólann og má gera ráð fyrir sjötíu og þremur börnum í leikskólanum næsta skólaár. Miðað er við að leikrými leikskólans sé fyrir u.þ.b. 68 börn eftir stækkun leikskólans fyrir nokkrum árum.
Á fundinum kom fram að miðað við áætlaða fjölgun má gera ráð fyrir því að fjölga þurfi starfsmönnum um tvo miðað við það sem rætt var í vetur í samræmi við kröfu um niðurskurð, með t.d. fækkun stöðugilda.
„Fjölgun barna í leikskólanum er mjög jákvæð en ljóst er að áætluð fjárframlög bæjarins duga ekki þar sem einnig þarf að auka við ýmsan búnað í leikskólanum, t.d. fatahólf, húsgögn o.fl. Fullur vilji er hjá starfsfólki til að stokka upp innra starf skólans og finna leiðir til að taka á móti öllum þeim börnum sem sótt hafa um.“