Mikill meirihluti samþykkti kjarasamninga
Félagsmenn í stéttarfélaginu Samstöðu hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga Starfsgreinasambands Íslands (SGS) sem skrifað var undir 5. maí síðastliðinn.
Atkvæðagreiðslan fór fram í gegnum póst dagana 11-24. maí. Alls tóku 45% félagsmanna þátt í kosningunni og sögðu 88% JÁ en 9% NEI. Auðir seðlar og ógildir voru fjórir.
Hjá verslunar- og skrifstofufólki var þátttakan 42% og sögðu 78% þeirra sem kusu JÁ og 22% NEI. Auðir seðlar og ógildir voru engir.
Samningar SGS og SA og LIV og SA voru því samþykktir með miklum meirihluta og koma þá hækkanir til framkvæmda frá og með 1. júní næstkomandi.
Eingreiðsla sem samið var um vegna tafa á endurnýjun kjarasamninganna, kr.50.000, tekur einnig gildi og á að greiðast út 1. júní. Sérstök orlofsuppbót kr. 10.000 skal greiðast út ekki síðar en 1. júlí kjósi ASÍ að segja samningum ekki upp. Launataxtar verða aðgengilegir á vef Samstöðu á næstu dögum.