Míla tilbúið til að reka opið ljósleiðaraaðgangsnet á Skagaströnd

Fjarskiptafyrirtækið Míla býðst til þess að að taka við samkomulagi við Rarik um lagningu ljósleiðarakerfis um Skagaströnd samhliða lagningu hitaveitulagna. Jafnframt er fyrirtækið tilbúið að skuldbinda sig til að eiga og reka opið ljósleiðaraaðgangsnet á svæðinu ef samkomulag næst um málið.

Þetta kom fram á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar í gær en fyrir fundinum lá álit lögfræðings sveitarfélagsins á hvort samkomulag um málið standist lagakröfur. Oddvita og sveitarstjóra var falið að vinna áfram að málinu í ljósi umræðu á fundinum og þeirra gagna sem fyrir honum lágu.

Fleiri fréttir