Milt veður um verslunarmannahelgina
Nú er verslunarmannahelgin framundan og mörgum umhugað um að hafa gott veður í fríinu. Hér á Norðurlandi vestra verður áfram milt veður, í dag verður sunnan 8-13 m/s og rigning með köflum. Hægari suðaustan átt og úrkomuminna á morgun. Hiti 11 til 17 stig.
Veðurhorfur á landinu á sunnudag er austlæg átt 5-10 m/s og súld eða rigning með köflum sunnantil á landinu, en annars skúrir. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast V-lands.
Á mánudaginn (frídegi verslunarmanna) verður norðaustlæg átt á landinu, 5-10 m/s, en heldur hvassara suðaustantil. Rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið um landið vestanvert. Áfram milt veður.