Mín Sýn - Myndlistarsýning í Kaffi Bjarmanesi
Sunnudaginn 30. júní nk. kl 13.00 opnar Herdís Þ. Jakobsdóttir myndlistasýninguna "Mín Sýn" í Kaffi Bjarmanesi á Skagaströnd.
Sýningin er 14 olíumálverk, en hluti þeirra eru samspil myndverks, ljóðs og tónlistar.
Sýningargestir fá mp3 spilara ( 4 spilarar) þar sem hægt er að hlusta á flutning ljóða/laga.
Mynd – ljóð – lag:
- Borgin Lag : Katie Melua. Texti : Herdís Þ. Jakobsdóttir.
- Ljósið Lag : Rúnar Þór. Texti : Herdís Þ. Jakobsdóttir.
- Farinn Lag : Emeli Sande. Texti : Herdís Þ. Jakobsdóttir.
- Dagar Lag : GCD. Texti: Herdís Þ. Jakobsdóttir
- Spegilinn Lag : Bubbi Morthens. Texti Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir sáu um allan tónlistaflutning og upptökur. Herdís Þ. Jakobsdóttir og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir syngja ljóðin/lögin.
Sýningin er styrkt af minningarsjóðinum um hjónin frá Garði og Vindhæli. Sýningin stendur til 31. júlí nk. Skagaströnd.is segir frá þessu.