Minni hassnotkun meðal nemenda FNV en annarra framhaldsskólanema
Rannsókn á vímuefnanotkun nemenda í framhaldsskólum landsins bendir til þess að hassnotknun nemenda Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sé minni en hjá nemendum annarra framhaldsskóla landsins.
Í könnun sem gerð var í febrúar 2013 og náði til 30 framhaldsskóla á landinu sögðu 1,8% þeirra nemenda FNV sem þátt tóku að þeir hefðu prófað að reykja hass einu sinni eða oftar um ævina. Í öðrum framhaldsskólum var hlutfallið allt að 16,4%.
Þá var spurt um reykingar og sögðu 6,2% svarenda í FNV að þeir reyktu daglega. Lægsta hlutfallið var 1,5% en það hæsta 33% og voru níu framhaldsskólar með lægra hlutfall en FNV.
Í könnuninni sögðust tæp 40% aðspurðra hafa orðið ölvaðir síðustu 30 daga, en það var þó með lægstu tölum á landsvísu, aðeins í sex skólum var hlutfallið lægra. Lægst var hlutfallið 25% í Menntaskólanum á Tröllaskaga en hæsta hlutfallið á landsvísu var 77,9% nemenda.
Þátttakendur í könnuninni voru dagskólanemendur á aldrinum 16-20 ára. Fyrirtækið Rannsóknir og greining, við Háskólann í Reykjavík gerði könnunina.
Frá þessu er greint frá á fésbókarsíðu FNV og heimasíðu Menntaskólans á Tröllaskaga, MTR.is.