Minningar fólks fangaðar á Blönduósi
Miðvikudaginn 19. október kom fjögurra manna hópur á Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu á Blónduósi til að bera kennsl á myndir en fyrir þeirri uppákomu stóð Guðmundur Paul Jónsson en hann hefur umsjón með myndasafninu. Er þetta liður í átaki sem fellst í því að fanga minningar fólks áður en það er orðið um seinan.
Á heimasíðu safnsins segir að vel hafi gengið að fá upplýsingar um margar myndir og mun þetta verða endurtekið. Hópurinn sem kom að þessu sinni samanstóð af þeim Kolbrúnu Zophoníasdóttur, Kristínu Ágústsdóttur, Ara Einarssyni og Gunnari Sigurðssyni.