Minningarmót Þorleifs Arasonar verður haldið í dag

Minningarmót Þorleifs Arasonar verður haldið á Húnavöllum (ekki á Vorboðavellinum) í dag, þriðjudaginn 13. ágúst kl. 18:00. Keppt verður í kúluvarpi, spjótkasti sleggjukasti og kringlukasti.

 

Á vef Húna.is er sagt frá því að mótið er haldið til minningar um Þorleif Arason slökkviliðsstjóra sem lést þann 11. nóvember 1991 einungis 46 ára gamall. Þorleifur, eða Dúddi eins og hann var alltaf kallaður, var mikið í frjálsum íþróttum og voru kastgreinarnar hans sérgrein.

Skráning verður á staðnum.

Fleiri fréttir