Minningartónleikar í Blönduóskirkju

Synir Einar heitins Guðlaugsson munu á laugardag halda tónleika til minningar um föður sinn Tónleikarnir sem verða haldnir í Blönduóskirkju hefjast klukkan 16:00 en þar munu koma fram þrír karlakórar og tvær lúðrasveitir.

• Sjóvádrengir og Veigabræður úr Reykjavík, stjórnandi Jón Karl Einarsson.

• Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, stjórnandi Sveinn Árnason.

• Skólalúðrasveit Seltjarnarness, stjórnandi Kári H. Einarsson.

• Skólalúðrasveit A-Hún., stjórnandi Skarphéðinn H. Einarsson.

Aðgangseyrir 1.000 krónur fyrir 12 ára og eldri og verður varið til góðgerðamála.

Fleiri fréttir