Mokstur hafinn á Siglufjarðarvegi og yfir Öxnadalsheiði

Á Norðurlandi vestra er greiðfært úr Hrútafjarðarbotni í Blönduós. Snjóþekja er á Þverárfjalli og hálka á Vatnsskarði. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er mokstur hafinn á Siglufjarðarvegi og yfir Öxnadalsheiði annars er hálka í Skagafirðinum og skafrenningur víða.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 15-23 m/s en heldur hægari eftir hádegi. Slydda eða snjókoma með köflum. Norðaustan 8-15 og él á morgun. Hiti nálægt frostmarki.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Norðaustan og austan 8-15 m/s, hvassast NV-til. Él með N- og A-ströndinni og slydda SV-lands. Vægt frost, en hiti 0 til 5 stig við S-ströndina.

Á fimmtudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él við sjóinn. Frost 0 til 14 stig, kaldast í innsveitum NA-til.

Á föstudag:
Hæg suðlæg átt, dálítil slydda og frostlaust vestast. Annars hæg breytileg átt, víða léttskýjað og kalt í veðri, einkum í innsveitum NA-til.

Á laugardag:
SA 13-20 og slydda eða snjókoma vestanlands. Suðvestlægari og rigning eða slydda síðdegis, en dálítil snjókoma á NA-verðu landinu. Hlýnandi í bili.

Á sunnudag og mánudag:
Suðvestan 8-18 m/s og éljagangur, en þurrt A-til á landinu. Frostlaust með suðurströndinni en annars frost 0 til 8 stig.

 

Fleiri fréttir