Mokuðu uppúr sökkvandi bátum

Björgunarsveitarmenn á Skagaströnd stóðu í ströngu í óveðrinu í gær við að bjarga bátum í höfninni. Samkvæmt Vísi.is kyngdi snjó niður á Skagaströnd og var björgunarsveitin Strönd kölluð út þegar fimm bátar í höfninni voru orðnir svo yfirfullir af snjó að minnstu munaði að þeir færu niður.

Ellefu björgunarsveitarmenn fóru á svæðið síðdegis í gær til að moka upp úr bátunum. „Þeir voru bara orðnir fullir af snjó. Þegar blotnar í því getur það skapað vandamál. Þetta tók svona tvo klukkutíma. Það er nú ekki mikill vindur hérna en aftur á móti mikill snjór. Það er í rauninni bara búið að vera dimmt, skyggnið mjög slæmt,“ sagði Reynir Lýðsson, formaður björgunarsveitarinnar, í samtali við Vísi.

Hann sagði að björgunarsveitarmenn hafi verið í viðbragðsstöðu í gær og hjálpað fólki að losa bíla sem festust í snjónum og fleira þess háttar.

Fleiri myndir má skoða á Vísi.is.

Fleiri fréttir