Mör frá Blönduósi breytt í eldsneyti

Sprotafyrirtækið Orkey á Akureyri hefur samið við sláturhúsin á Blönduósi og Kópaskeri um að fá samtals 100 tonn af mör á yfirstandandi sláturvertíð og verður hráefnið notað til að framleiða lífdísil í verksmiðju Orkeyjar.

 

Frá þessu var sagt í Morgunblaðinu í gær. Orkey hefur undanfarin tvö ár kannað ýmsa möguleika á framleiðslu lífdísils, jafnt úr erlendu sem innlendu hráefni. Meðal annars hefur Orkey framleitt eldsneyti úr úrgangssteikingarolíu sem meðal annars einn strætisvagna Akureyrarbæjar hefur notað.

„Við breytum fitunni í lífdísil, sem mengar ekki eins mikið og venjulegt eldsneyti, auk þess sem dýrmætur gjaldeyrir sparast með því að framleiða eldsneyti hér á landi og þessi vinnsla skapar líka atvinnu. Úr þessum 100 tonnum á að vera hægt að framleiða nærri 85 tonn af eldsneyti. Við erum ekkert að finna upp hjólið í þessum efnum, víða erlendis er framleitt eldsneyti úr steikingarolíu með góðum árangri og dýrafitan er góð viðbót,“ segir Kristinn Sigurharðarson, framkvæmdastjóri Orkeyjar í samtali við Morgunlaðið.

/Húni.is

Fleiri fréttir