Mörg góð hross á yfirlitssýningu á Sauðárkróki í dag
Yfirlitssýning kynbótahrossa á Sauðárkróki hófst með sýningu á 4. vetra hryssum klukkan níu í morgun á félagssvæði Léttfeta. Hross hafa verið leidd fyrir dómara frá því á mánudag en alls fengu 103 hross fullnaðardóm af 114. Að sögn Steinunnar Önnu Halldórsdóttur hafa sýningar gengið vel og mörg góð hross verið sýnd.
Vallaraðstæður segir Steinunn vera góðar enda var völlurinn tekinn í gegn fyrir skömmu og ekki skemmir veðrið fyrir í dag en sólin skín eins og enginn sé morgundagurinn.
Hæstu aðaleinkunn hefur Narri frá Vestri-Leirárgörðum náð í flokki 7 vetrastóðhesta og eldri 8,65, Knár frá Ytra-Vallholti 8,39 í flokki stóðhesta 6 vetra, Hraunar frá Vatnsleysu 8,02 í flokki stóðhestar 5 vetra og Besti frá Upphafi 8,00 í stóðhestar 4 vetra.
Hjá hryssunum stendur Muska frá Torfunesi efst í flokki 7 vetra og eldri með aðaleinkunnina 8,08, Brigða frá Brautarholti 8,43 í flokki 6 vetra, Ólafía frá Lækjamóti 8,15 í flokki 5 vetra og Hugsun frá Bessastöðum 7,82 í flokki 4 vetra hryssa.
HÉR er hægt að nálgast röðun hrossa á yfirlitssýningunni og sjá einkunnir vikunnar.