Morgunblaðsskeifan í Vatnsdalinn

Húnvetningurinn Harpa Birgisdóttir hreppti Morgunblaðsskeifuna á Skeifudegi Grana á Hvanneyri sem fram fór á sumardaginn fyrsta. Grani er hestamannafélag nemenda við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri en þetta var í 56. sinn sem Skeifudagurinn var haldinn.

Á Skeifudeginum sýna nemendur afrakstur vetrarins í tamningum og reiðmennsku. Sá nemandi í hrossarækt 3 sem stendur sig best í verklegum prófum fær Morgunblaðsskeifuna, verðlaunagrip sem Morgunblaðið hefur veitt samfellt í 56 ár.

Keppni og sýningar fóru fram í reiðhöllinni á Mið-Fossum en verðlaunaafhending í húsnæði skólans. Þar voru jafnframt brauðskráðir nemendur úr námskeiðsröðinni reiðmanninum.

Harpa kemur frá bænum Kornsá í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Aðspurð segist hún vera yngsta barnið og hafa verið fyrst á heimilinu til að fá áhuga á hestum. Hún heldur þó að áhugi á hestamennsku hafi blundað í foreldrunum því þau hafi haft gaman af útreiðum.

Foreldrar Hörpu eru með sauðfjárbú á Kornsá og heima hjá henni voru aðeins venjulegir smalahestar og stóð sem slátrað var úr til kjötframleiðslu. „Pabbi fór að setja á merar þegar ég fór að sýna þessu áhuga og þetta er allt á uppleið. Þá sýndu foreldrar mínir áhuga, fóru að keyra mig á reiðnámskeið og leggja upp úr því að hafa betri hross. Ég stefni að því að verða sauðfjárbóndi og er að búa mig undir það“ segir Harpa í viðtali við Morgunblaðið.

Harpa er nemandi á fyrsta ári í búvísindadeild. Hún hefur aðeins reynt sig í keppni á heimaslóðum og unnið við tamningar en tekur fram að hún hafi ekki í huga að gera hestamennsku að atvinnu. „Ég hef aðeins áhuga á að rækta hross fyrir sjálfa mig og njóta þess að ríða út. Það er frábært að eiga góðan hest,“ sagði Harpa í samtali við Morgunblaðið.

Fleiri fréttir