Mótmæla harðlega hækkunum Póstsins

Félagsfundur Samfylkingarinnar á Vestfjörðum, haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, miðvikudaginn 10. nóvember 2021, mótmælir harðlega þeim hækkunum Póstsins sem settar eru á landsbyggðina með nýrri gjaldskrá sem tók gildi 1. nóvember sl.

Með þessari hækkun er fólkinu í landinu mismunað. En fram til þessa dags hefur verðskrá hins opinbera fyrirtækis miðast við að sama verð gildi um allt land, líkt og krafa löggjafans hefur verið. Í sumar var lögum breytt þannig að póstinum er óheimilt að hafa sama verð um land allt. Fundurinn skorar á löggjafann að endurskoða afstöðu sína.

Fundurinn lýsir yfir vonbrigðum sínum með framkvæmd talningar í Norðvesturkjördæmi og hvetur stjórnvöld til að leysa málið sem fyrst, þannig að sátt ríki um kosninguna.

/Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir