Mótmæla harðlega tillögum til nýrrar stjórnarskrár

Félag ungs framsóknarfólks í Húnavatnssýslum mótmælir harðlega 111. gr. í tillögum stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár og hefur af því tilefni sent frá sér ályktun.

Í ályktuninni mótmælir FUF í Húnavatnssýslum harðlega því sem þeir lýsa sem  landráðum og má finna í 111. gr. í tillögudrögum stjórnlagaráðs um framsal ríkisvalds en þar segir orðrétt: „Heimilt er að gera þjóðréttarsamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu.“

Í ályktuninni segir að þegar tillögugreinin er lesin má sjá skýran og einbeittan brotavilja því í skýringartexta með 111. gr. segir: „Orðalagið „framsal ríkisvalds“ felur í sér að heimilt verði að framselja hluta löggjafarvalds, framkvæmdarvalds eða dómsvalds til alþjóðastofnana.“

Sjálfstætt ríki segja FUF í Húnavatnssýslum aldrei mega framselja löggjafavald, framkvæmdavald eða dómsvald til annarra ríkja. Það er því mat FUF að tillagan brjóti gegn 86. gr. hegningarlaganna en þar segir:

„Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.“

„Teljum við þetta vera beina aðför að Íslensku lýðveldi og skapa hættu á því að Ísland gæti misst stöðu sína sem fullvalda ríki komi til þess að gengið yrði til kosninga og eða samninga við ESB. Teljum við að þetta sé sérstaklega hættulegt í ljósi þeirra auðlinda sem að við sem þjóð búum að og margir ásælast,“ segir loks í ályktuninni.

 

Fleiri fréttir