Mótmæla stórauknum áformum um sjókvíaeldi

Veiðifélag Vatnsdalsár leggst harðlega gegn stórauknum áformum um sjókvíaeldi á laxi á Vestfjörðum og víðar um land. Sérstaklega er lagst gegn því að eldi á norskum eldislaxi í sjókvíum verði leyft í Ísafjarðardjúpi. Þetta kom fram á fundi stjórnar félagsins sem haldinn var í Flóðvangi sl. mánudag.

 Bent var á að eldi í Ísafjarðardjúpi yrði þá komið alveg að gönguslóð húnvetnskra laxa og gæti ógnað stórum laxveiðiám.  Eldislax af framandi stofnum sem sleppur úr sjókvíum gæti valdið óafturkræfum umhverfisspjöllum og spillt líffræðilegum og efnahagslegum verðmætum.

Stjórnin bendir á að ef eingöngu væri alinn ófrjór lax í eldiskvíum væri ekki hætta á erfðamengun við íslenska laxastofna. Best væri þó að allt eldi færi fram í strandeldisstöðvum. Á þann hátt hyrfi hætta af erfðablöndun og útbreiðslu sjúkdóma að mati stjórnar og þar með yrði líka hætt að sleppa úrgangi frá fiskeldinu í sjóinn með miklum umhverfisáhrifum. Þá var á það bent að þó uppbygging fiskeldis geti haft jákvæð áhrif á byggðaþróun mætti alls ekki láta fiskeldið skaða lífríkið og ógna íslenskum laxfiskastofnum.

Fleiri fréttir