Mottumars áheitakeppnin framlengd til fjögur
Vefurinn Mottumars.is hefur legið niðri sökum álags í morgun og því hefur áheitakeppnin verið framlengd til fjögur í dag. Allir hvattir til að finna einhvern með góða mottu og heita á hann pínu peningi. Þarf ekki að vera há upphæð en eins og gamla máltækið segir þá gerir margt smátt eitt stórt.