Mótun menntastefnu Íslands til ársins 2030

Vinna er hafin við að móta nýja menntastefnu Íslands til ársins 2030. Menntastefna sú mun ávarpa og setja í forgang þær áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir í mennta- og velferðarmálum og hafa heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun til hliðsjónar.

„Leiðarljós okkar verður gæðamenntun fyrir alla, á öllum skólastigum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem hrundið hefur þessu verkefni af stað. „Við viljum fá sem flesta að borðinu og vinna þessa stefnumótun í breiðu og góðu samráði. Það eru mikil sóknarfæri í íslensku menntakerfi, á mörgu góðu að byggja en nú er verkefnið að stilla saman strengi um stefnuna til framtíðar – því lífsgæði okkar þá hvíla á ákvörðunum dagsins í dag.“ 

Eitt af markmiðum nýrrar menntastefnu verður að tryggja að allir í skólasamfélaginu líti á skólastarf án aðgreiningar sem grundvöll gæðamenntunar fyrir alla nemendur í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Sú stefna, kennd við menntun fyrir alla, hefur verið í endurmati og þróun sl. ár og nú er starfandi stýrihópur, á breiðum samstarfsgrundvelli, sem leiða mun þá vinnu áfram. Að henni koma mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti, ráðuneyti félags- og jafnréttismála og heilbrigðismála, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Skólameistarafélag Íslands, samtökin Heimili og skóli og Háskóli Íslands fyrir hönd kennaramenntastofnana.

Nú á haustmánuðum 2018 gengst stýrihópurinn fyrir 23 fræðslu- og umræðufundum um allt land um menntun fyrir alla, sem lið í mótun nýrrar menntastefnu. Tveir fundir verða haldnir á hverjum stað, hvor fyrir sinn markhóp. Fundur verður haldinn fyrir Norðurland vestra á Sauðárkróki, mánudaginn 24. september. 

Fyrri fundurinn verður með forsvarsmönnum sveitarfélaga og ábyrgðaraðilum málaflokka mennta-, velferðar- og heilbrigðismála ásamt fulltrúum aðila í stýrihópnum. Markmið fundarins verður að kynna og ræða helstu tillögur sem styðja við framkvæmd gæðamenntunar fyrir alla sem leiðarljós nýrrar menntastefnu og ræða samstarf allra aðila í heimabyggð er koma að menntamálum og tengingar þeirra við stýrihópinn og aðrar áætlanir stjórnvalda.

Seinni fundurinn verður með fulltrúum kennara og frístundafólks, stjórnendum leik-, grunn- og framhaldsskóla, fulltrúum foreldra, skóla- og félagsþjónustu og forstöðumönnum skóla-, fjölskyldu og frístundamála í heimabyggð. 

Markmið fundarins er:
• Mótun menntastefnu 2030.
• Að ræða sameiginlegan skilning á menntun fyrir alla sem leiðarljós nýrrar menntastefnu til umbóta í skólastarfi og auka þar með jöfnuð meðal allra hópa skólasamfélagsins. 
• Að ræða mikilvægi lærdómssamfélags og tækifæri til samstarfs og starfsþróunar á hverjum stað. 
• Að ræða þverfaglegt samstarf á sviði mennta-, velferðar- og heilbrigðismála og ráðgjöf við nemendur, starfsfólk og foreldra.
• Að ræða hvernig aðilar í heimabyggð setja verkefni sem tengjast menntun fyrir alla á dagskrá.

 /Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir