Mugison í kirkjunni næstkomandi sunnudagskvöld

Einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar síðustu ár, hinn vestfirski Mugison, heldur tónleika í Sauðárkrókskirkju sunnudagskvöldið 9. október og hefjast þeir kl. 21:00. Mugison mætir ásamt hljómsveit og miðað við umfjöllun um tónleika hans frá því um síðustu helgi ættu tónleikagestir að geta reiknað með frábærri skemmtun.

Þannig gaf Kristján Hjálmarsson á Fréttablaðinu Mugison og félögum 5 stjörnur fyrir tónleika í Fríkirkjunni um síðustu helgi og Arnar Eggert á Mogganum splæsti í 4 stjörnur. Tilefni tónleikaferðarinnar er nýútkominn geisladiskur, Haglél, sem fengið hefur glimrandi dóma.

Mugison mun sjálfur spila á gítar og syngja, Guðni Finnsson annast bassaleik, Arnar Gíslason spilar á trommur og Þorbjörn Tobbi Sigurðsson tekur að sér hljómborð og gítar.

Forsala aðgöngumiða er á mugison.is >

Fleiri fréttir