Muna ekki aðra eins byrjun i Blöndu

Alls komu 50 laxar á land á fyrsta veiðidegi ársins í Blöndu og muna menn ekki aðra eins byrjun í ánni, að því er segir í frétt á vefnum Húnahornið. Fjörið hófst strax upp úr klukkan sjö á sunnudagsmorguninn og var fyrsti laxinn kominn á land 10 mínútur yfir sjö. morgun en fyrsti laxinn kom á land tíu mínútur yfir sjö.
Alls voru komnir 40 laxar á land seinnipartinn. Veitt er á fjórar stangir á svæði 1 sem opnaði á sunnudaginn en efri svæði opna 20. júní. Haft er eftir Vigni Björnssyni veiðiverði að flestir laxanna hafi verið um 10-12 pund en sá stærsti um 20 pund. Talið er líklegt að met hafi verið slegið á fyrsta degi við opnun Blöndu og að þessu opnun sé jafnvel einsdæmi í laxveiði hérlendis.