„Við erum gríðarlega ánægð að tilkynna að Nemanja Đurišić hefur gengið til liðs við Tindastól,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem birt var í hádeginu. Nemanja er 2,03 m hár framherji með mikla reynslu.
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf, Lokað efni 20.10.2026
kl. 14.10 hinrik@feykir.is
Undirskriftasöfnuninni til stuðnings Endurhæfingarsundlauginni á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er lokið. Alls skrifuðu 1228 undir listann sem verður nú sendur til stjórnar HSN, Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórnar Skagafjarðar. Alls söfnuðust 1228 undirskriftir.
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning 20.10.2026
kl. 11.41 oli@feykir.is
Færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir leggur upp í tónleikaferð um Ísland dagana 20.–29. október. Ferðin er tileinkuð nýjustu plötu hennar, Sýrublað, sem kom út í apríl og er sjöunda hljóðversplata hennar. Alls eru fyrirhugaðir níu tónleikar víðs vegar um landið og þar á meðal í Krúttinu á Blönduósi miðvikudaginn 21. október kl. 21.
Í dag opnar Framsókn vefinn utreikningur.is. Þar getur fólk fengið sundurliðað mat á því hvernig breytingar á sköttum, gjöldum og stuðningi við heimilin geta haft áhrif á heimilisbókhaldið.
Í dag opnar Framsókn vefinn utreikningur.is. Þar getur fólk fengið sundurliðað mat á því hvernig breytingar á sköttum, gjöldum og stuðningi við heimilin geta haft áhrif á heimilisbókhaldið.
Tilgangur þessa greinarkorns er að hvetja áhugamenn um nautgriparækt til að taka þátt í ráðstefnu á Flúðum 3. nóvember næstkomandi. Hún er haldin til að minnast 100 ára afmælis Huppu á Kluftum þann dag. Fundur hefst kl 11 og mun standa til kl 17. Hrunamannahreppur, Nf. Hrunamanna og Bsb. Suðurlands standa að ráðstefnunni. Þar verður mjög fróðleg og þétt dagskrá um íslenska nautgriparækt með aðaláherslu á dreifingu Kluftstofnsins um allt land á síðustu öld og þær ótrúlegu framfarir í mjólkurframleiðslunni sem dreifing hans olli.
KPMG hefur tekið upp skýrara og markvissara fyrirkomulag við veitingu samfélagsstyrkja á landsbyggðinni. Markmiðið er að tryggja að stuðningur félagsins nýtist þar sem hann getur haft mest jákvæð áhrif og styðji við verkefni sem skapa virði fyrir samfélagið. Með nýrri styrktarstefnu er lögð aukin áhersla á samfélagsleg áhrif verkefna og hvernig þau falla að framtíðarsýn KPMG um langtímaverðmætasköpun fyrir samfélagið. Jafnframt er lögð áhersla á gagnsætt umsóknarferli, skýrari forgangsröðun og betri yfirsýn yfir þann árangur og þau áhrif sem stuðningurinn skilar.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
„Greifarnir eru á ferðalagi um landið með 40 ára afmælistúrinn, Síðasta sveitaballið. Við erum að heimsækja gömul samkomuhús og rifja upp sveitaballastemninguna sem margir sakna. Svo er nýja lagið okkar, Endalaust sumar, nýkomið út,“ segir Viddi í Greifunum sem jafnan hafa verið kenndir við Húsavík. Viddi heitir fullu nafni Kristján Viðar Haraldsson, fæddur 1965 og búsettur í Reykjavík.