Mustad tekur þátt í fyrsta sinn

Síðasta liðið sem kynnt er til þátttöku í KS-Deildinni í vetur er Mustad. Liðstjóri er Sina Scholz og með henni eru Hlynur Guðmundsson, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Flosi Ólafsson. Hér er um nýtt lið að ræða sem vann sér þátttökurétt í gegnum úrtöku og hefur engin af þessum knöpum keppt áður í KS-Deildinni. 

„Þetta lið hefur lægstan meðalaldur allra liða deildarinnar en munu án efa láta til sín taka,“ segir í fréttatilkynningu. 

Fleiri fréttir