Mynd vikunnar á heimasíðu Svf. Skagastrandar

Ljósmyndasafn Skagastrandar á  um 11.000 myndir. Um það bil 2500 þeirra eru komnar á netið þar sem hægt er að skoða þær og senda inn athugasemdir um viðkomandi mynd ef einhverjar eru. Á heimasíðu Skagastrandar segir að til gamans mun verða sett ein mynd á viku á heimasíðu sveitarfélagsins og er fólk beðið um að vera safninu innan handar með þær upplýsingar sem óskað er eftir um þær myndir.  

Netfang ljósmyndasafnsins er:  myndasafn@skagastrond.is  en einnig má senda upplýsingar á netfangið: olibenna@hi.is  eða hafa bara beint samband við Óla Benna í síma 451 2210 sem sér um ljósmyndasafnið nú um stundir.

Mynd vikunnar að þessu sinni:

Á myndinni er Ole Aamundsen athafnamaður á Skagaströnd ásamt konu sinni og fósturdóttur. Ole, sem var norskur að uppruna, var lengi umboðsmaður á Skagaströnd fyrir Shell olíufélagið og rak líka lýsisbræðslu og útgerð um tíma. Ef þú veist hvað konan og stúlkan á myndinni heitir vinsamlegast sendu þá ljósmyndasafninu þær upplýsingar á netfangið myndasafn@skagastrond.is.

 

Fleiri fréttir