Myndir þú kaupa bol með áprentaðri mynd af íslenskum eldfjöllum?

Dagur Bjarni Kristinsson er einn af þeim sem sækja Frumkvöðlasmiðju sem Farskólinn stendur fyrir ásamt Vinnumálastofnun og er unnið að ýmsum verkefnum. Viðfangsefni Dags er að gera einfalda viðskiptaáætlun um verkefni sem hann hefur lengi haft áhuga á.

-Hugmynd mín er að láta prenta ákveðnar myndir á boli og selja m.a. á eBay og víðar. Hluti af verkefninu er að gera skoðanakönnun með aðstoð internetsins, segir Dagur sem hvetur fólk til að taka þátt í henni. Þar er m.a. spurt hvort viðkomandi myndi kaupa bol með ákveðnum myndum á en einnig má koma með eigin hugmyndir að myndum.

Könnunin er mjög stutt en hana er hægt að nálgast HÉR

Fleiri fréttir