Mýrarbraut 33 er Jólahús ársins 2012 hjá Húnahorninu
Lesendur Húnahornsins hafa valið Mýrarbraut 33 sem Jólahús ársins 2012 á Blönduósi. Samkvæmt vefmiðlinum er húsið er ríkulega og fallega skreytt jólaljósum og hefur það vakið athygli bæjarbúa. Þetta er í ellefta sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á Jólahúsi ársins á Blönduósi.
Á Húna.is segir að fjölmörg hús fengu tilnefningar en eitt skaraði fram úr og var það Mýrarbraut 33. Í innsendum umsögnum sagði m.a.: „vel hannaðar skreytingar bæði á húsi og í garði, sem skila fallegri útkomu.“ „Jólaskreytingarnar eru skemmtilega samsettar og vel settar upp.“ „Flott og vel uppsett, stílhreint og smekklegt“.
Eigendur Mýrarbrautar 33 eru Jóhanna Guðrún S. Magnúsdóttir og Vilhjálmur Jónasson.