N4 í Austur-Húnavatnssýslu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
30.09.2013
kl. 08.49
Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 heldur áfram að sýna fréttainnslög frá Húnavatnssýslum í þáttunum Að norðan og eru þeir aðgengilegir á vef sjónvarpsstöðvarinnar. Í síðustu þáttum hefur verið efni úr Austur-Húnavatnssýslu, eins og greint var frá á Húnahorninu í síðustu viku.
Rætt er við Snjólaugu M. Jónsdóttur, margfaldan meistara í skotfimi hjá skotfélaginu Markviss á Blönduósi en hún vann alla titla sem í boði voru í kvennaflokki í sumar. Sjá má fréttainnslagið hér.
Rætt er við Halldór G. Ólafsson, stjórnarformann Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd um starfsemi listamiðstöðvarinnar og við Melody Woodnutt, forstöðumann listamiðstöðvarinnar. Sjá má fréttainnslagið hér.