Náðu árangri á netinu
Boðið verður upp á námskeið í markaðssetningu á netinu þann 13. og 14. janúar næstkomandi í félagsheimilinu á Blönduósi þar sem kynntar verða breytingar og aðferðir í markaðssetningu á netinu með tilkomu m.a. Facebook og Twitter ásamt notkun leitarvéla og færni í notkun þeirra.
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason, ráðgjafi (sjá www.marketingsafari.org) en hann mun m.a. segja frá því hvernig honum tókst að fá yfir 800.000 manns frá 213 löndum til þátttöku á vefnum án þess að kosta til einni einustu krónu.
Námskeiðið er í boði Vinnumálastofnunar og er þátttakendum að kostnaðarlausu og að mati námskeiðshaldara er þetta góð fjárfesting sem skilar sér strax í bættum árangri. Vegleg vinnubók fylgir og verður boðið upp á léttan hádegisverð og kaffiveitingar.
Námskeiðið hefst klukkan 9:00 og stendur til kl. 16:00 báða daga.
Skráning á nordurland.vestra@vmst.is Vinsamlega gefið upp nafn, kennitölu, síma og netfang.
Allir velkomnir.