Næturgestir á skólalóðinni

Erlendu ferðamennirnir sem heimsækja Blönduós fara ekki allir hefðbundnar leiðir við val á svæði til gistingar.

Á vef Húna.is er sagt frá því að nemendur Blönduskóla urðu svolítið hissa þegar þeir mættu í skólann í gærmorgun og við þeim blasti tjald á skólalóðinni. Óhætt er að segja að tjaldið hafi vakið eftirtekt í nemendahópnum.
Fljótlega uppúr átta birtist ungt par út úr tjaldinu og að sögn eins kennara Blönduskóla var ekki laust við að það væri hálf vandræðalegt þegar það mætti honum. Má líklegt telja að þetta sé í fyrsta sinn sem þessi blettur er valinn til að tjalda á.

Fleiri fréttir