Nafn stúlkunnar sem lést
Stúlkan sem lést á Siglufirði 16. nóvember síðastliðinn hét Elva Ýr Óskarsdóttir. Hún var 13 ára gömul, fædd 16. ágúst 1998, og bjó að Eyrarflöt 10 á Siglufirði.
Mikil sorg ríkir hjá bæjarbúum og er hugur þeirra allra hjá fjölskyldu ungu stúlkunnar og vinkonu hennar sem liggur nú á sjúkrahúsinu á Akureyri. Kyrrðarstund var haldin í Siglufjarðarkirkju í gærkvöld vegna hins hörmulega slyss og friðarljós hafa logað um allan bæ sem lýsa samhugi Siglfirðinga.